Fara yfir á efnisvæði

Innköllun á Nissan Juke og Nissan NV200

28.08.2018

FréttamyndNeytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf. að innkalla þurfi 15 Nissan Juke bifreiðar og 2 Nissan NV200 sem framleiddar voru 2017. Í ljós hefur komið að mögulegur galli í kveikjusviss getur valdið því að bifreiðin drepi á sér í akstri. Innkallaðar bifreiðar verða skoðaðar og skipt um svissbotn ef þurfa þykir
Eigendum þessara bifreiða verur tilkynnt um innköllunina bréfleiðis.  

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA