Fara yfir á efnisvæði

Innköllun á Kia Picanto TA

25.09.2018

lógó bílaumboðið Askja

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju að innkalla þurfi 64 Kia Picanto TA bifreiðar af árgerðinni 2011-2012. Ástæða innköllunarinnar er að eldsneytishosur milli eldsneytistanks og áfyllingarrörs gætu verið gallaðar og valdið leka.  Viðgerð felst í því að skipt verður um eldsneytishosur. Aðgerð er eigendum að kostnaðarlausu og tekur u.þ.b.1 klst. 

Eigendum þessara bifreiða verur tilkynnt um innköllunina bréfleiðis.   

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA