Fara yfir á efnisvæði

Toyota innkallar 4021 bifreiðar

11.12.2018

FréttamyndNeytendastofu hefur borist tilkynning frá Toyota á Íslandi um að innkalla þurfi Toyota bifreiðar af árgerðunum 2000 til 2007.  Um er að ræða 4021 bifreiðar af gerðunum Avensis (1654 eintök), Corolla (2159 eintök), Verso (185 eintök) og Yaris (23. eintök). Ástæða innköllunarinnar er sú að loftpúðar bifreiðanna gætu verið gallaðir. Um er að ræða hluta af alþjóðlegri innköllun sem rekja má til loftpúðaframleiðandans Takata.

Við innköllun er skipt um loftpúða eða hluta af honum. Viðgerð tekur allt frá einni klukkustund til tæpra sex klukkustunda. Viðkomandi bifreiðareigendum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis.
Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA