Fara yfir á efnisvæði

BL Hyundai innkallar KONA EV

11.01.2019

Lógó Hyundai

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá BL Hyundai Kauptúni 1 í Garðabæ, að innkalla þurfi 66 Hyundai KONA EV bifreiðar sem framleiddar voru árið 2018. Ástæða innköllunar er forritunargalli í loftpúðaheila. Viðgerð frelst í því að endurforrita loftpúðaheilann.

Hringt verður í eigendur umræddra bifreiða og tími fundinn fyrir endurforritun.

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa. 

TIL BAKA