Fara yfir á efnisvæði

Bílabúð Benna innkallar 8 bifreiðar

14.03.2019

Fréttamynd

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílabúð Benna ehf um að innkalla þurfi Porsche bifreiðar af tegundunum Macan og Cayanne bifreiðar af árgerðunum 2017 til 2018.  Um er að ræða 8 bifreiðar. 

Ástæða innköllunarinnar er að skipta þarf út skíðapoka sem fylgja bifreiðunum. Skíðapokarnir uppfylla ekki öryggiskröfur ef slys á sér stað. Prófanir hafa leitt í ljós að festingar pokans eru ekki nægilega traustar og sé pokinn notaður fyri skíðabúnað getur skíðapokinn valdið miklu tjóni við árekstur. Viðkomandi bifreiðareigendum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis.

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.  

TIL BAKA