Fara yfir á efnisvæði

Fífa innkallar barnaburðarpoka

21.03.2019

FréttamyndNeytendastofu hefur borist tilkynning frá Fífu barnavöruverslun um innköllun á barnaburðarpokum frá Mini monkey. Um er að ræða tvær tegundir Sling Unlimited 4 in 1 og Sling unlimited 7 in 1. Barnaburðarpokarnir geta verið hættulegir þar sem þeir geta rifnað.

Prófun á Sling Unlimited 4 in 1 leiddi einnig í ljós að samkvæmt merkingum var burðarpokinn ætlaður mjög ungum börnum, en börn undir fjögurra mánaða verða að vera í burðarpoka sem er sérstaklega útbúinn með stuðning fyrir höfuð þeirra.

Neytendastofa hvetur þá sem eiga umrædda barnaburðarpoka að hætta notkun þeirra strax þar sem hætta er á að festingar halda ekki og barnið getur dottið úr pokanum.

TIL BAKA