Fara yfir á efnisvæði

Bílaumboðið Askja innkallar Mercedes Benz X-Class

12.04.2019

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf um að innkalla þurfi Mercedes Benz X-Class bifreiðar af árgerð 2017 og 2018.  Um er að ræða 15 bifreiðar. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að ljós fyrir ofan fætur hjá ökumanni geta losnað. Hætta getur fylgt því ef ljósið flækist milli bremsupedala og klæðningar. Lagfæring felst í því að sérstakt límband úr filtefni er sett um ljósið til að tryggja festingu þess

Viðkomandi bifreiðareigendum verður tilkynnt um innköllunina símleiðis.

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.  

TIL BAKA