Fara yfir á efnisvæði

Innköllun á KIA Niro

20.05.2019

lógó bílaumboðið Askja

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf um að innkalla þurfi KIA Niro bifreiðar. Um er að ræða 132 bifreiðar af undirtegundunum DE, HEV og PHEV

Ástæða innköllunarinnar er að ófullnægjandi tengingar í rafliðaboxi gætu orsakað eld við sérstakar aðstæður. Við skoðun eru rafliðabox athuguð og skipt um ef þurfa þykir. Viðkomandi bifreiðareigendum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis.

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA