Fara yfir á efnisvæði

Bílaumboðið Askja innkallar Mercedes-Benz

07.06.2019

Fréttamynd

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf um að innkalla þurfi Mercedes-Benz bifreið. Um er að ræða afturhjóladrifna bifreið með rafmagsstýri. Rannsóknir benda til þess að við ákveðið högg á hjólbarða getur ró á stýrismaskínu brotnað. Við innköllun er skipt um stýrismaskínu. Viðkomandi bifreiðareiganda verður tilkynnt um innköllunina símleiðis.

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA