Fara yfir á efnisvæði

Brimborg innkallar 376 Volvo bifreiðar

16.08.2019

FréttamyndNeytendastofu hefur borist tilkynning frá Brimborg ehf  um að innkalla þurfi 376 Volvo bifreiðar ýmsum gerðum sem framleiddar voru á árunum 2014 til 2019 Ástæða innköllunarinnar er að komið hefur í ljós að í sjaldgæfum tilfellum getur plasthluti soggreinar í vél bifreiðarinnar bráðnað og afmyndast. Í verstu tilfellum er möguleiki á að eldur kvikni á afmörkuðu svæði.
Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina  bréfleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA