Fara yfir á efnisvæði

BL ehf. innkallar Nissan Micra

19.09.2019

Fréttamynd

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf  um að innkalla þurfi 144 Nissan Micra bifreiðar af árgerð 2016 - 2017. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að loftpúðabelgir farþegamegin virki ekki sem skyldi. Viðgerð felst í því að skipt verður um loftpúða. Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina  bréfleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.


TIL BAKA