Fara yfir á efnisvæði

BL innkallar 87 Subaru XV

13.11.2019

Subaru vörumerkiNeytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf  um að innkalla þurfi 87 Subaru XV bifreiðar af árgerð 2017 til 2019. Ástæða innköllunarinnar er að mögulega þarf að skipta um háspennukefli og endurforrita vélstjórnarbox.
Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina  bréfleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA