Fara yfir á efnisvæði

Duldar auglýsingar á samfélagsmiðlum bannaðar

26.11.2019

Neytendastofu bárust ábendingar vegna færslna á Instagram síðu tveggja áhrifavalda þar sem fjallað var um margvíslegar vörur og þjónustu fyrirtækja án þess að það kæmi fram að um auglýsingu var að ræða. Neytendastofa krafði áhrifavaldana um upplýsingar um hvort endurgjald hefði komið fyrir umfjöllunina, hvernig viðskiptasambandi þeirra og fyrirtækjanna væri háttað og hvort þriðji aðili hefði annast milligöngu vegna umfjöllunarinnar. Við meðferð málsins kom fram að áhrifavaldarnir höfðu þegið vörur að gjöf frá fyrirtækjunum sem telst vera endurgjald.

Neytendastofa taldi að um væri að ræða markaðssetningu og að ekki hefði komið fram með nægilega skýrum hætti að umfjöllunin hefði verið auglýsing eða að hún væri gerð í viðskiptalegum tilgangi, en slíkt verður að koma skýrt fram. Stofnunin bannaði því áhrifavöldunum að nota duldar auglýsingar á samfélagsmiðlum.

Ákvarðanirnar má nálgast hér.

Leiðbeiningar Neytendastofu um auðþekkjanlegar auglýsingar fyrir áhrifavalda og fyrirtæki má nálgast hér.


TIL BAKA