Fara yfir á efnisvæði

Askja innkallar Mercedes-Benz

25.02.2020

FréttamyndNeytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf um að innkalla þurfi 26 Mercedes-Benz bifreiðar af gerðunum C-Class, E-Class, GLC, CLS, AMG GT og G-Class.

Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að beltamóttakari fyrir framsætin skynji ranglega hvort sætin séu spennt eða ekki.
Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina símleiðis.

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA