Fara yfir á efnisvæði

BL innkallar Isuzu

05.03.2020

Lógó BLNeytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf  um að innkalla þurfi 13 Isuzu D-Max, Crew Cab, 4x2 HR /4x4 model bifreiðar af árgerð 2018-2019. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að festingar á fjaðrablöðum geta brotnað. Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina símleiðis og með tölvupósti. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA