Fara yfir á efnisvæði

Askja innkallar Mercedes-Benz Artos og Acros.

27.03.2020

lógó bílaumboðið AskjaNeytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf  um að innkalla þurfi 3 Mercedes-Benz Actros og Arcos bifreiðar. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að A-stýfa rifni. Við skoðun er athugað hvort bifreiðin sé með stýfu frá BOGE Rubber 6 Plastics. Ef svo er þá er henni skipt út fyrir aðra frá ZF.

Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina símleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA