Fara yfir á efnisvæði

Apótek sektuð fyrir verðmerkingar

08.07.2020

Neytendastofa skoðaði ástand verðmerkinga í apótekum á höfuðborgarsvæðinu og hefur nú lagt stjórnvaldssektir á fjögur þeirra.

Skoðunin tók til 49 apóteka á höfuðborgarsvæðinu og voru í fyrstu heimsókn gerðar athugasemdir við verðmerkingar í 44 þeirra. Í skoðununum var sérstaklega kannað hvort vörur væri verðmerktar, hvort verðmerking væri rétt og hvort verðmerkingar fyrir aftan afgreiðsluborð væru nægilega sýnilegar neytendum. Þeim fyrirmælum var beint til allra apótekanna að bæta verðmerkingar að viðlögðum sektum. Skoðuninni var fylgt eftir með nýrri skoðun og hafði meirihluti apótekanna bætt úr verðmerkingum hjá.

Í kjölfar seinni skoðunar taldi Neytendastofa tilefni til að sektað fjögur af þeim apótekum sem ekki bættu verðmerkingar sínar milli skoðana, það eru Rima Apótek, Farmasía, Íslandsapótek og Lyfja Smáratorgi. Hvert apótek var sektað um 50.000 kr.

Finna má ákvarðanirnar í heild sinni hér.


TIL BAKA