Fara yfir á efnisvæði

Útgáfufélaginu Kili ehf. bönnuð notkun á heitinu Kjölur.

07.10.2011

Bókbandsstofan Kjölur leitaði til Neytendastofu með kvörtun yfir notkun Útgáfufélagsins Kjalar á heitinu Kjölur.

Bæði fyrirtækin sinna útgáfustarfsemi og nota heitið Kjölur í þeirri starfsemi sem að mati Neytendastofu er til þess fallið að valda ruglingi milli fyrirtækjanna. Neytendastofa taldi Bókbandsstofuna eiga betri rétt þar sem fyrirtækið hefði notað heitið mun lengur en Útgáfufélagið Kjölur.

Var Útgáfufélaginu Kili því bönnuð notkun heitisins Kjölur í tengslum við útgáfustarfsemi fyrirtækisins.

Ákvörðun nr. 61/2011 má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA