Fara yfir á efnisvæði

Athugun Neytendastofu á vefsíðum

16.09.2010

Neytendastofa tekur þátt í samvinnu stjórnvalda á Evrópska efnahagssvæðinu um neytendavernd, sbr. ákvæði laga nr. 56/2007. Einn þátturinn í samstarfinu eru samræmdar aðgerðir á ýmsum afmörkuðum sviðum viðskiptalífsins, á ensku nefnt „sweep“. Stjórnvöld í þeim ríkjum sem taka þátt í aðgerðunum kanna samtímis og með sama hætti í öllum ríkjunum hvort réttindi neytenda séu virt. Í kjölfarið kanna stjórnvöld nánar þau fyrirtæki sem mögulega brjóta gegn lögum og reglum og grípa til aðgerða ef um brot er að ræða.

Sala raftækja á Netinu
Í maí 2009 var gerð athugun á vefsíðum sem bjóða til sölu raftæki ætluð neytendum, þ.e. stafrænar myndavélar, farsíma, tónlistarspilara, DVD spilara, tölvubúnað og leikjatölvur. 26 aðildarríki ESB auk Noregs og Íslands tóku þátt í athuguninni sem tók til 369 vefsíðna. Þegar könnun var gerð uppfylltu aðeins 44% vefsíðna þau skilyrði sem gerð eru þegar fyrirtæki selja á Netinu. Nú ári síðar eftir aðgerðir stjórnvalda í þeim ríkjum sem tóku þátt uppfylla 84% vefsíðna skilyrðin.

Á Íslandi voru kannaðar tíu vefsíður og gerðar athugasemdir við átta þeirra. Öll fyrirtækin tóku tillit til athugasemda Neytendastofu og lagfærðu vefsíður sínar.

Miðasala á Netinu
Í júní 2010 gerði Neytendastofa athugun á vefsíðum sem selja miða á menningar- og íþróttaviðburði. Á Íslandi voru kannaðar sex vefsíður en það voru: midi.is, sinfonia.is, borgleikhus.is, leikhusid.is, salurinn.is og opera.is. Athugasemdir voru gerðar við tvær vefsíður og hefur stofnunin haft samband við þau fyrirtæki og óskað eftir nánari upplýsingum og að lagfæringar verði gerðar.

27 aðildarríki ESB auk Íslands og Noregs tóku þátt í aðgerðunum sem tók til 414 vefsíðna. 40% þeirra uppfylltu skilyrði fyrir miðasölu á Netinu og 60% þarfnast nánari athugunar sem stjórnvöldin sem tóku þátt eru að vinna að.

Algengustu misbrestirnir voru ófullnægjandi upplýsingar um endanlegt verð, ósanngjarnir samningsskilmálar og skortur á upplýsingum um seljanda.

Fréttatilkynningu Evrópusambandsins í heild má lesa hér.

Nánari upplýsingar um sameiginlegar aðgerðir má finna hér.

TIL BAKA