Fara yfir á efnisvæði

Neytendastofa sektar Betra bak

05.03.2013

Neytendastofa hefur lagt 1.500.000 stjórnvaldssekt á verslunina Betra Bak fyrir að hafa auglýst heilsudýnur á tilboðsverði lengur en heimilt er Betra bak hafði boðið Tempur heilsudýnur á lækkuðu verði samfellt frá því í byrjun júnímánaðar 2012 til miðs októbermánaðar 2012. Þegar vara hefur verið auglýst á tilboði í sex vikur er ekki hægt að segja að hún sé á tilboðsverði.

Auk þess að brjóta gegn reglum sem gilda um útsölur og aðra sölu þar sem selt er á lækkuðu verði, hefur Betra Bak jafnframt brotið gegn eldri ákvörðun Neytendastofu frá því í apríl 2012 , „Ákvörðun um sekt vegna tilboðsauglýsinga Betra baks“. Þótti Neytendastofu af þessu tilefni nauðsynlegt að leggja stjórnvaldssekt á fyrirtækið.

Ákvörðunina má nálgast hér.

 

TIL BAKA