Fara yfir á efnisvæði

Firmaheitið istore bannað

19.09.2013

Neytendastofa hefur bannað eiganda netverslunarinnar Buy.is notkun á firmaheitinu istore ehf. Buy.is og aðrar netverslanir sem sami aðili rekur eru í samkeppni við verslunina iStore. Neytendastofa taldi mikla hættu á ruglingi milli fyrirtækja þegar notast væri við sama heitið og þar sem eigandi verslunarinnar iStore ætti betri rétt til heitisins var hinum bönnuð notkun þess.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA