Fara yfir á efnisvæði

Kvikmyndahús sektuð vegna verðmerkinga

09.04.2010

Neytendastofa gerði könnun á ástandi verðmerkinga hjá kvikmyndahúsum eins og fram kom í frétt stofnunarinnar í febrúar s.l. og hefur stofnunin í kjölfarið sektað Senu ehf., sem rekur Smárabíó og Háskólabíó, fyrir slakar verðmerkingar.

Kvikmyndahúsum ber skylda til að verðmerkja allar söluvörur sínar, þ.m.t. í afgreiðsluborði og nammibar. Hjá Smárabíó voru vörur í afgreiðsluborði óverðmerktar og hjá Háskólabíó var ekkert sýnilegt kílóaverð við nammibar.

Senu var gefinn kostur á að koma verðmerkingum í rétt horf en þar sem ekki var farið að tilmælum Neytendastofu hefur stofnunin lagt á Senu sekt að fjárhæð 200.000 kr.

Ákvörðun nr. 8/2010 má lesa hér.

TIL BAKA