Fara yfir á efnisvæði

Ákvörðun Neytendastofu um auglýsingar Taco Bell

24.03.2011

Fréttamynd

Neytendastofa hefur bannað birtingu auglýsinga Taco Bell með yfirskriftinni „Burt með brauðið“.

Stofnuninni barst kvörtun frá Íslensk-ameríska vegna auglýsinganna þar sem þær væru ósanngjarnar gagnvart keppinautum Taco Bell og annarra sem hafa hagsmuni af sölu eða framleiðslu brauðs. Þá væru þær villandi gagnvart neytendum þar sem brauðmagn í réttum Taco Bell hafi ekki breyst.

Í niðurstöðum ákvörðunarinnar er um það fjallað að yfirskriftin „Burt með brauðið“ hafi enga tengingu við efni auglýsingarinnar, hvort sem tortillur geti talist brauð eða ekki, þar sem þeir réttir sem auglýstir eru miðist við að osti og sósu sé skipt út fyrir Fiesta salsa. Fullyrðingin sé því ósanngjörn gagnvart neytendum og keppinautum Taco Bell enda sé skírskotað til óviðkomandi mála. Auk þess sé neytendum talin trú um að brauðmagn réttanna hafi minnkað þegar svo er ekki og því sé auglýsingin villandi gagnvart neytendum og þeim veittar rangar upplýsingar um helstu einkenni vörunnar. Þá séu auglýsingarnar ósanngjarnar gagnvart keppinautum þar sem gefið sé í skyn að brauð sé almennt óhollt þrátt fyrir ráðleggingar t.d. Landlæknis og Lýðheilsustöðvar um að dagleg neysla grófs brauðs sé holl.

Ákvörðun nr. 6/2011 má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA