Fara yfir á efnisvæði

Neytendastofa víkur til hliðar breytingu á samningsskilmála bílasamnings

28.09.2009

Neytendastofa hefur með ákvörðun sinni nr. 25/2009 vikið til hliðar breytingu á samningsskilmála bílasamnings, kaupleigu, hjá SP-Fjármögnun.

Tilefni ákvörðunarinnar var ábending frá neytanda þar sem fram kom að SP-Fjármögnun byði viðskiptavinum sínum að gera breytingar á skilmálum samningsins vegna greiðsluerfiðleika. Við þá breytingu væri lántökum gert að undirrita skilmálabreytingu þar sem fram kom að lántaki samþykki almenna skilmála. Við undirritun var lántökum ekki gerð grein fyrir því að breytingin fæli í sér breytingu á almennum skilmálum sem fylgdu með upphaflega samningnum. Við skoðun á hinum breyttu almennu skilmálum kom í ljós að SP-Fjármögnun væri nú heimilt að breyta vaxtaálagi árlega.

Á forsíðu upphaflega samningsins kom fram að vaxtaálag sé fast en vextir breytilegir, vegna breytinga á LIBOR vöxtum þar sem samningurinn væri gerður í erlendri mynt. Í almennum skilmálum upphaflega samningsins var ekki fjallað um vaxtaálag. Eftir breytingu á almennum skilmálum eru þeir því ekki í samræmi við efni samningsins.

Neytendastofa taldi breytinguna of viðamikla til þess að hún yrði framkvæmd með einfaldri skilmálabreytingu. Þá taldi stofnunin sérstaklega ámælisvert að breytingin hafi ekki verið kynnt lántaka sérstaklega.

Neytendastofa taldi breytingu SP-Fjármögnunar á almennum skilmálum bílasamnings, kaupleigu, því brjóta geng ákvæðum 5. og 8. gr. laga nr. 57/2005 um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu. Með vísan til 36. gr., sbr. 3. mgr. 36. gr. c., samningalaga nr. 7/1936 var hinum nýja samningsskilmála því vikið til hliðar. Vaxtaálag er því enn fast skv. upphaflegu ákvæði samningsins.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér

TIL BAKA