Fara yfir á efnisvæði

Neytendastofa sektar hárgreiðslu- og snyrtistofur

19.07.2011

Neytendastofa kannaði ástand verðmerkinga hjá hársnyrtistofum og snyrtistofum á höfuðborgarsvæðinu.
Margar af þeim stofum sem gerðar voru athugasemdir við bættu merkingar sínar en nokkrar þeirra fóru ekki að tilmælum Neytendastofu um verðmerkingar. Því hefur Neytendastofa nú sektað tvær hársnyrtistofur og eina snyrtistofu fyrir ófullnægjandi verðmerkingar.

Hársnyrtistofum og snyrtistofum ber skylda til að hafa sýnilegan verðlista yfir a.m.k. algengustu þjónustuþætti og til að verðmerkja allar söluvörur sínar.

Stofunum var öllum gefinn kostur á að koma verðmerkingum sínum í lag en þar sem þær fóru ekki að tilmælum Neytendastofu hefur stofnunin lagt á þær stjórnvaldssektir, hverja að fjárhæð 50.000 kr.

Ákvarðanirnar eru nr. 40/2011, 41/2011 og 45/2011 og má lesa hér.

TIL BAKA