Fara yfir á efnisvæði

Innköllun hjá IKEA

26.04.2012

Fréttamynd

Neytendastofa vekur athygli á innköllun frá IKEA á IKEA 365+ SÄNDA braut 70 og/eða 114 frá framleiðanda 21338 með dagsetningarstimplinum 1134 – 1208 að hætta notkun brautarinnar og koma með hana í IKEA verslunina til að fá nýja braut eða fulla endurgreiðslu.

Innköllunin er framkvæmd vegna gallaðrar jarðtengingar í brautinni sem getur valdið hættu á útleiðslu þegar brautin eða tengd ljós eru snert. Til að gæta fyllsta öryggis verður að taka brautina úr sambandi áður en hún er tekin niður. IKEA hefur ekki borist tilkynning um óhöpp vegna SÄNDA brautarinnar.

Brautirnar sem kallaðar eru inn voru seldar á tímabilinu september 2011 til mars 2012.

Sjá tilkynningu frá IKEA hér.

TIL BAKA