Fara yfir á efnisvæði

Sektarákvörðun vegna Epli.is staðfest

10.01.2012

Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur með úrskurði sínum í máli nr. 21/2011 staðfest þá ákvörðun Neytendastofu að sekta Skakkaturninn ehf. rekstraraðila Epli.is um kr. 1.500.000 vegna brots á fyrri ákvörðun stofnunarinnar.  Með ákvörðun dags. 3. desember 2010 taldi Neytendastofa að Skakkiturninn ehf. hefði brotið gegn ákvæðum laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu þar sem hann gat ekki fært sönnur á fullyrðinguna "engir vírusar" í auglýsingum fyrirtækisins á Apple fartölvum.  Var fyrirtækinu bannað að auglýsa með umræddum hætti. 

Í október s.l. bárust Neytendastofu ábendingar um að Skakkiturninn ehf. væri aftur farinn að auglýsa með framangreindri fullyrðinu. Þar sem fyrirtækinu hafði þegar verið bannað að nota fullyrðinguna „Engir vírusar“ í auglýsingum sínum var óhjákvæmilegt að leggja stjórnvaldssekt á fyrirtækið.

Úrskurðinn má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA