Fara yfir á efnisvæði

Hvenær er útsala útsala?

12.07.2010

Fréttamynd

Það eru nokkur atriði sem neytendur þurfa að hafa í huga nú þegar útsölur eru að hefjast. Verslunum eru settar ákveðnar skorður með það hvenær megi auglýsa útsölu. Það eru ákvæði í lögum um viðskiptahætti og markaðssetningu og einnig eru reglur um útsölur og aðra sölu þegar vara er seld á lækkuðu verði. Tilgangurinn með reglunum er að koma í veg fyrir að neytendur séu blekktir til að halda að þeir séu að fá vörur eða þjónustu á betri kjörum en gengur og gerist ef svo er ekki raunin. Það má því ekki hækka verð í þeim tilgangi einum að geta lækkað það á útsölu.

Verslanir þurfa að taka skýrt fram í auglýsingum og á sölustað hvaða vörur eru seldar á lækkuðu verði. Útsölu má einungis auglýsa þegar um raunverulega verðlækkun er að ræða og þarf að koma fram hvert sé fyrra verð vörunnar. Varan þarf að hafa verið seld á því verði sem er tilgreint sem fyrra verð og þarf það að vera verðið sem varan var seld á áður en útsalan byrjaði. Þegar vara hefur verið seld á lækkuðu verði í sex vikur þá er útsölu eða tilboðs verðið orðið venjulegt verð. Það er því ekki hægt að hafa vörur á útsölu eða tilboði allan ársins hring því þá er ekki um að ræða betri kjör til neytenda en gengur og gerist.

Það er heimilt að auglýsa opnunar- og kynningartilboð án þess að vara hafi verið seld á því verði sem er gefið upp sem venjulegt verð með því skilyrði að varan hækki í eftir tilgreindan tíma.

Neytendastofa hefur eftirlit með því að verslanir fari eftir þeim reglum sem gilda um útsölur og fylgir eftir ábendingum frá neytendum telji þeir reglurnar brotnar. Verslanir þurfa þá að geta sannað að þær séu að fara að reglunum. Neytendastofa hefur þurft að sekta verslanir fyrir villandi og rangar auglýsingar um útsölu.

TIL BAKA