Fara yfir á efnisvæði

Bönd í blöðrum, hugum að öryggi barna

06.06.2011

Nú er þjóðhátiðardagurinn 17. júní skammt undan og hátíðarhöldin sem honum fylgja. Börnum er þessi dagur oft sérstakt tilhlökkunarefni enda jafnan ýmis skemmtun í boði til að gleðja þau. Svo þessi stund verði sem ánægjulegust er mikilvægt að hugað sé að öryggi barna.

Út um allan bæ um allt land má víðast hvar sjá blöðrur af ýmsum toga og eru álblöðrur þar einna mest áberandi. Á þær eru gjarnan sett gjafabönd sem stundum eru mjög sterk og næstum óslítanleg, jafnvel fyrir fullorðna. Blöðrurnar eru síðan afhentar börnum, oft eru þær bundnar við barnavagna eða úlnliði barna. Þetta getur skapað hættu fyrir ung börn, sér í lagi ef þau eru ekki undir stöðugu eftirliti fullorðinna. Viljandi eða óviljandi geta börn vafið slíkum böndum um háls sér með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Lengri bönd geta skapað hættu á kyrkingu. Vegna þess vill Neytendastofa benda á að samkvæmt leikfangastaðlinum ÍST EN 71 er ákveðin hámarkslengd á böndum fyrir leikföng og mega þau ekki vera meira en 22 cm á lengd ef á enda bandsins er festing sem getur valdið því að lykkja myndast og skapað hættu.

Til að gæta fyllstu varúðar telur Neytendastofa rétt að framangreind lengd sé höfð til viðmiðunar þegar bönd eru sett í blöðrur. Um leið má benda á að blöðrur, líkt og önnur leikföng, sem markaðssettar eru á Íslandi eiga að vera CE merktar og uppfylla ákvæði staðla og reglna sem um þær gilda.

Forráðamönnum barna er bent á að blöðrur ætti alls ekki binda við vöggu, rúm eða handleggi barna eða þar sem börn eru að leik án eftirlits.

Njótum 17. júní hátíðarinnar sem og annarra gleðidaga prýdda blöðrum, gleðilega hátíð.

Sesselja Th. Ólafsdóttir
Sérfræðingur
Öryggissvið

TIL BAKA