Fara yfir á efnisvæði

Smálánafyrirtæki sektuð fyrir of háan kostnað

06.06.2014

Neytendastofa hefur eftirlit með því að lánssamningar vegna neytendalána séu í lagi. Hluti af eftirlitinu er að fara yfir hvort allar nauðsynlegar upplýsingar komi fram í samningum og hvort árlega hlutfallstölu kostnaðar (ÁHK) sé rétt reiknuð. Lánveitendur eiga í lánssamningi að veita neytendum bæði skýrar upplýsingar um kostnað sem fylgir láninu, þ.e. lántökugjöld, vexti, þóknun, skatta og öll önnur gjöld, og upplýsingar um ÁHK. ÁHK er allur kostnaður af láninu gefinn upp í einni prósentutölu sem má samkvæmt lögum um neytendalán ekki vera hærri en 50% að viðbættum stýrivöxtum. Lögin setja því takmörk við því hversu mikinn kostnað lánveitendur mega taka.

ÁHK á að auðvelda neytendum að bera saman kostnað af lánum frá ólíkum lánveitendum og þannig komist að því hvar hagstæðasta lánstilboðið er.

Neytendastofa tók til skoðunar kostnað sem smálánafyrirtækin taka og hvernig ÁHK er reiknuð. Fyrirtækin bjóða lán sem tekur um átta daga að afgreiða en neytendur geta valið að fá lánið afgreitt strax með því að greiða fyrir lánshæfismat frá öðru fyrirtæki. Smálánafyrirtækin hafa ekki tekið kostnaðinn af flýtiafgreiðslunni með í útreikning á ÁHK.

Í skýringum fyrirtækjanna kom fram að þar sem neytendur geta vali hvort þeir borgi fyrir að fá lánhæfismat afgreitt hraðar teljist kostnaðurinn af matinu ekki hlut af heildarlántökukostnaði og sé þess vegna ekki hluti af ÁHK. Neytendastofa féllst ekki á þessa skýringu þar sem lánveitandi á að framkvæma lánshæfismat þó hann megi rukka fyrir það. Kostnaður við gerð lánshæfismats telst hluti af heildarlántökukostnaði og á hann að vera innifalinn í útreikningi á ÁHK.

Þegar þessi kostnaður er tekinn með í útreikninginn verður ÁHK hjá öllum fyrirtækjunum mun hærri en 50% eða 2.036,6% hjá Múla, Hraðpeningum og 1909 og 3.214,0% hjá Kredia og Smálán. Vegna þessa hefur Neytendastofa sektað smálánafyrirtækin fyrir að fara ekki eftir lögum um neytendalán.

Ákvörðun vegna Kredia og Smálána má lesa hér (28/2014)

Ákvörðun vegna 1909, Hraðpeninga og Múla má lesa hér (29/2014)

TIL BAKA