Fara yfir á efnisvæði

Hekla hf innkallar 445 Mitsubishi Pajero bifreiðar

03.02.2015

Fréttamynd

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Heklu hf að innkalla þurfi Mitsubishi Pajero bifreiðar af árgerðinni 2007-2014 með vélartegund 4M41. Ástæða innköllunar er að bilun í tímakeðjustrekkjara getur valdið því að hann virki ekki sem skyldi og óeðlilegt hljóð komið frá tímakeðju. Í versta falli getur strekkjari brotnað og valdið alvarlegum skemmdum á vél þannig að bíllinn verður ógangfær. Skipt verður um tímakeðjustrekkjara og búnaður í kringum hann skoðaður og skipt um aðra hluta ef þarf.

Umráðamönnum viðkomandi bíla verður sent bréf á næstu vikum.

TIL BAKA