Fara yfir á efnisvæði

Hekla innkallar Volkswagen 144 bifreiðar

03.02.2017

Fréttamyndeytendastofu hefur borist tilkynning frá Heklu hf um að innkalla þurfi 144 Volkswagen Golf, Touran og Passat, sem framleiddir voru á ákveðnu tímabili og eru með tiltekna hugbúnaðarútgáfu fyrir rafkerfisstjórnun. Ástæða innköllunar er að villa er í forritun á rafkerfisstjórnboxi, sem veldur því að ef bilun verður í ljósabúnaði, kviknar ekki aðvörun sem á að koma í mælaborði. Einnig getur aðvörun um að bilun sé í ljósum komið í mælaborð þó að ljós séu í lagi. Viðgerð felst í endurforritun á rafkerfisstjórnboxi.

Haft verður samband við bíleigendur næstu daga.

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við Heklu hf ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA