Fara yfir á efnisvæði

Textílmerkingar

Framleiðendum textílvara ber að merkja vörur sínar með þar til gerðum merkingum í samræmi við reglur nr. 220/2015, um heiti og merkingu textílvara, sem innleiða reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1007/2011 og nr. 286/2012. Textílvörur í skilningi reglnanna eru allar vörur sem unnar eru úr textíl. Um merkingar á skóm gilda reglur nr. 381/2007, um merkingar efnis í skófatnaði.

Ef vara hefur verið framleidd utan Evrópu og ber ekki textílmerkingar í samræmi við reglurnar ber innflytjandi ábyrgð á að bæta úr upplýsingagjöfinni þannig að tryggt sé að neytendur séu ávallt rétt upplýstir.

Í reglunum er ekki fjallað um skyldu til að merkja vörur með þvottaleiðbeiningum eða stærð heldur taka þær til upplýsinga um innihald textílsins, þ.e. úr hvaða efni varan er framleidd. Þannig er kveðið á um það hvaða textílheiti skal notast við og að skýrt skuli greina frá prósentuhlutföllum ef um textíltrefjablöndu er að ræða. Þá skal þess gætt ef varan er sett saman með mörgum efnisþáttum, t.d. ef flík er fóðruð, að fram komi upplýsingar um hvern efnisþátt.

Fyrir skó gilda efnislega sömu reglur. Notast skal við viðurkennd heiti og á því formi sem kveðið er á um í reglunum. Á skóm er heimilt að notast við skýringarmyndir í stað texta.

Dæmi um ákvörðun Neytendastofu sem byggja á reglum um textílmerkingar:

    •     Ákvörðun nr. 65/2015, Sjarmatröll.is
    •     Ákvörðun nr. 64/2015, lindesign.is


TIL BAKA