Fara yfir á efnisvæði

Löggildingarstofa viðurkennir öryggisstjórnun SR-mjöl í Helguvík

06.03.2003

Þann 5.mars sl. gaf Löggildingarstofa út formlega viðurkenningu á öryggisstjórnun SR-mjöl hf í Helguvík. Verksmiðjan hefur starfað eftir öryggisstjórnunarkerfi í liðlega 2 ár og verið  skoðað af faggiltri skoðunarstofu eftir skilgreindum verklagsreglum Löggildingarstofu. Hún hefur þó ekki lokið viðurkenningarferli að fullu fyrr en nú.

Ábyrgðarmaður öryggisstjórnunarkerfisins er Jón M. Halldórsson.

Verksmiðjan er þriðja iðjuverið til þess að hljóta viðurkenningu Löggildingarstofu, en hin eru ÍSAL og Sementsverksmiðjan.  Öllum iðjuverum með háspennt raforkuvirki er skylt að koma sér viðurkenndu öryggisstjórnunarkerfi, en nú vinna fjölmörg iðjuver að innleiðingu slíks kerfis.

TIL BAKA