Fara yfir á efnisvæði

Hekla hf innkallar 19 Mitsubishi L 200

13.08.2019

Vörumerki MitsubishiNeytendastofu hefur borist tilkynning frá Heklu hf  um að innkalla þurfi 19 Mitsubishi L200 bifreiðar af árgerð 2016. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að hnoð í festingum fyrir stigbretti geta ryðgað í sundur. Gerist það gæti stigbrettið losnað af og skapað slysahættu. Viðgerð felst í því að hnoð eru fjarlægð og boltar og rær settar í stað þeirra.

Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina  bréfleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA