Fara yfir á efnisvæði

Hættulegar rafhlöður í fartölvum

21.08.2006

Innköllun á hættulegum rafhlöðum fyrir fartölvur af gerðinni Dell fer nú fram á vegum EJS hf og Dell. Umræddar rafhlöður geta verið í Dell fartölvum sem framleiddar voru á tímabilinu apríl 2004 til júlí 2006. Nánari upplýsingar er að finna á vef EJS hf. sjá einnig frétt á mbl.is.

Rafföng: Rafhlöður fyrir fartölvur af gerðinni Dell.

Vörumerki: Dell (Sony).

Tegundir / Gerðir: Margar mismunandi gerðir. Sjá nánar á vef EJS hf.

Þekktir söluaðilar á Íslandi:  Selt af mörgum mismunandi aðilum. 

Hætta: Af rafföngunum getur stafað brunahætta.

Hvernig er hægt að þekkja rafföng?: Sjá nánar á vef EJS hf.

Hvað eiga eigendur slíkra raffanga að gera ?: Eigendur eiga að að hætta notkun þeirra þegar í stað og snúa sér til EJS hf í síma 440 9000. Einnig er hægt að hafa samband við viðkomandi söluaðila á Íslandi. 

TIL BAKA