Fara yfir á efnisvæði

Merkingar á textíl, skóm og kristallsgleri

Eftirlit með textílmerkingum, merkingum á skóm og kristallsgleri er í höndum Neytendastofu. Viðskiptahættir atvinnurekanda mega ekki vera villandi með því að mikilvægum upplýsingum sé sleppt, þeim leynt eða þær veittar á óljósan, óskiljanlegan, margræðan eða ótímabæran hátt. Í sérreglum sem gilda um þessar vörur er fjallað um hvernig merkja skuli vörurnar og hvaða textílheiti eru leyfileg.

Framleiðendum textílvara ber að merkja vörur sínar með þar til gerðum merkingum í samræmi við reglur um heiti og merkingu textílvara, nr. 2020/2015. Textílvörur eru allar vörur sem unnar eru úr textíl. Textíll eru ýmiss konar efni sem framleidd eru úr þráðum af mismunandi uppruna eins og til dæmis ull, bómull og viskós. Ef vara hefur verið framleidd utan Evrópu og ber ekki textílmerkingar í samræmi við gildandi reglur ber innflytjandi ábyrgð á að bæta úr upplýsingagjöfinni þannig að tryggt sé að neytendur séu ávallt rétt upplýstir.

Í reglunum er ekki fjallað um skyldu til að merkja vörur með þvottaleiðbeiningum eða stærð heldur innihaldi textílsins, þ.e. úr hvaða efni varan er framleidd, hvaða textílheiti skuli notast við og að skýrt skuli greina frá prósentuhlutföllum ef um textíltrefjablöndu er að ræða. Þá skal þess gætt að ef varan er sett saman með mörgum efnisþáttum, t.d. þegar flík er fóðruð, skal gefa upplýsingar um hvern efnisþátt fyrir sig.

Um merkingar efnis í skófatnaði gilda reglur um merkingar efnis í skófatnaði, nr. 381/2007 en skv. reglunum telst til skófatnaðar allar vörur með sóla sem ætlað er að verja eða þekja fætur. Einungis er heimilt að markaðssetja skófatnað ef upplýsingum um samsetningu á efni hans er komið á framfæri með merkingum. Notast skal við viðurkennd heiti og á sérstöku formi sem kveðið er sérstaklega á um í reglum. Á skóm er heimilt að notast við skýringarmyndir í stað texta og upplýsingarnar skulu að minnsta kosti tilgreindar á öðrum skó hvers pars. Þetta er hægt að gera með því að prenta upplýsingarnar, líma þær eða greypa á skóinn eða nota á fastan merkimiða. Merkingarnar skulu vera læsilegar, aðgengilegar og skýringamyndir skulu vera nægilega stórar

Innan Evrópu gilda sérstakar reglur um samsetningu, framleiðslueiginleika og merkingu á kristallsgleri. Reglurnar eiga við um borð-, skrifstofu-, bað- eða eldhúsbúnað úr gleri og glervörur til innanhússskreytinga. Markaðssetning og auglýsing á þessum vörum er einungis heimil ef upplýsingar um samsetningu, framleiðslueiginleika og merking kristallsglersins er í samræmi við reglur um samsetningu, framleiðslueiginleika og merkingu á kristallsgleri, nr. 382/2007.

TIL BAKA