Fara yfir á efnisvæði

Innköllun á kertum

12.12.2008

Hagkaup og heildverslunin Danco innkalla gölluð kerti. Um er að ræða kertalínu sem fengist hefur í verslunum Hagkaupa og sem Danco hefur selt til ýmissa verslana frá því í október 2008. Þetta eru sex gerðir kerta í þremur litum; gyllt, silfruð og rauð. Yfirborð kertanna er eins og alsett litlum kúlum með glimmer-áferð.

Tilkynnt hefur verið um tvö tilvik þar sem gallans hefur orðið vart en sökum þeirrar hættu sem getur stafað af vörunni óskar Hagkaup eftir að viðskiptavinir skili henni umsvifalaust.

Gallinn lýsir sér þannig að þegar kveikt er á gölluðu kerti brennur það í 1-2 klukkutíma án þess að nokkuð virðist vera að. Kveikurinn brennur hins vegar ekki upp og stækkar því eftir því sem kertið brennur lengur. Þegar kertið hefur brunnið í 1-2 klukkustundir magnast eldurinn þannig að hætta getur stafað af.

Nauðsynlegt er að taka þessi kerti umsvifalaust úr umferð og skila þeim inn til viðkomandi verslunar.

Frekari upplýsingar hér:
http://danco.is

TIL BAKA