Fara yfir á efnisvæði

Bönd á blöðrum, hætta fyrir ung börn

16.12.2010

Neytendastofu hefur borist ábending um barn sem var hætt komið vegna þess blaðra hafði verið bundin við rúm þess og barnið náði að vefja bandið utan um hálsinn á sér. Á skemmtunum,  útihátíðum og í afmælum eru víða finna álblöðrur.  Á þær eru gjarnan sett gjafabönd sem stundum eru mjög sterk og næstum óslítanleg, jafnvel fyrir fullorðna.  Blöðrurnar eru síðan afhentar börnum, oft eru þær bundnar við barnavagna eða úlnliði barna.  Þetta getur skapað hættu fyrir ung börn, sér í lagi ef þau eru ekki undir stöðugu eftirliti fullorðinna.  Viljandi eða óviljandi  geta börn vafið slíkum böndum um háls sér með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Lengri bönd geta skapað hættu á kyrkingu. Vegna þess vill Neytendastofa benda á að samkvæmt leikfangastaðlinum ÍST EN 71 er ákveðin hámarkslengd á böndum fyrir leikföng  og mega þau ekki vera  meira en 22 cm á lengd ef á enda bandsins er festing sem getur valdið því að lykkja myndast og skapað hættu.

Til að gæta fyllstu varúðar telur Neytendastofa rétt að framangreind lengd sé höfð til viðmiðunar þegar bönd eru sett í blöðrur. Um leið má benda á að blöðrur, líkt og önnur leikföng,  sem markaðssettar eru á Íslandi eiga að vera CE merktar og uppfylla ákvæði staðla og reglna sem um þær gilda.

Forráðamönnum barna er bent á að blöðrur ætti alls  ekki binda við vöggu,  rúm eða handleggi barna eða þar sem börn eru að leik án eftirlits.

Öryggissvið Neytendastofu

TIL BAKA