Fara yfir á efnisvæði

Auglýsingar Nova

09.07.2012

Neytendastofa fékk kvörtun frá Símanum yfir auglýsingablaði Nova þar sem fram kom að Nova lofaði fyrirtækjum 20% lægri símakostnaði auk þess sem fullyrt væri að hjá Nova fengjust ódýrustu, vinsælustu og snjöllustu farsímarnir.

Nova hélt því fram í málinu að með loforði um 20% lægri símakostnað væri ekki verið að bera saman verð Nova við keppinauta eða gefa til kynna að Nova byði nákvæmlega sömu þjónustu en fyrir 20% lægra verð. Neytendastofa féllst ekki á það og taldi heildarmat á auglýsingunni benda til þess að um verðsamanburð væri að ræða. Neytendastofa taldi Nova sýna fram á það með fullnægjandi hætti að fullyrðingin væri sönn og félagið gæti lækkað símakostnað fyrirtækja um 20%. Þó gerði Neytendastofa athugasemdir við að í auglýsingunni kæmi ekki fram að mismunur geti verið á þjónustu sem keppinautar bjóði og Nova bjóði með 20% lækkun. Samanburðurinn væri því villandi og ósanngjarn gagnvart keppinautum Nova.
Þá taldi Neytendastofa Nova ekki hafa sannað fullyrðingar um að félagið byði ódýrustu, vinsælustu og snjöllustu farsímana. Fullyrðingarnar voru því bannaðar.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA