Fara yfir á efnisvæði

Raftækjaverslanir almennt vel verðmerktar

02.07.2013

Starfsmenn Neytendastofu fóru í 14 raftækjaverslanir á höfuðborgarsvæðinu og gerðu könnun á ástandi verðmerkinga. Verðmerkingar í verslununum voru almennt góðar. Þó voru gerðar athugasemdir við að töluvert væru um óverðmerktar vörur í verslunum Elko á Granda og í Skeifunni.

Samhliða skoðun á verðmerkingum voru skoðaðar orkumerkingar á tækjum í verslunum. Orkumerkingar segja meðal annars til um árlega orkunotkun tækisins, hljóðstyrk hennar og fleira. Gerðar voru athugasemdir við orkumerkingar á fleiri stöðum en verðmerkingar en nánar verður greint frá þeim hluta skoðunarinnar síðar.

Neytendastofa hvetur neytendur til að vera vel á verði og koma ábendingum til stofnunarinnar með rafrænum hætti í gegnum Mínar síður Neytendastofu.

TIL BAKA