Fara yfir á efnisvæði

Bann við afhendingu endurskinsmerkja Strætó BS

18.12.2013

Fréttamynd

Neytendastofa hefur sett bann við afhendingu endurskinsmerkja sem Strætó bs. hefur verið að afhenda og dreifa. Bannið er sett í kjölfar tímabundins sölubanns sem Neytendastofa setti á, á grundvelli ábendingar sem stofnuninni barst.

Strætó gat ekki sýnt fram á að merkin væru í raun  endurskinsmerki.  Neytendastofa taldi því merkin ekki vera endurskinsmerki. Hætta væri á að þau veittu falskt öryggi þar sem neytendur sem gætu talið þau vera endurskinsmerki. Á þeim forsendum hefur Neytendastofa bannað afhendingu merkisins.

Í framhaldi þessa máls hvetur Neytendastofa neytendur til að skoða allar merkingar og upplýsingar sem fram koma á endurskinsmerkjum til að tryggja öryggi sitt sem best. Um leið viljum við ítreka að það er ekki hægt að sjá hversu gott endurskinsmerkið er með því einu að horfa á þau eða  með því að prófa þau sjálf.  Viðurkennd endurskinsmerki hafa verið prófuð sérstaklega.

Neytendastofa hvetur innflytjendur og dreifingaraðila endurskinsmerkja að vera vissir um að merkin séu af góðum gæðum. Merkin eiga að vera  CE merkt  og merkt með nafni framleiðanda og tegund eða heiti vörunnar. Auk þess eiga að fylgja íslenskar leiðbeiningar, merkt með staðlinum EN 13356 og upplýsingum um tilkynntan aðila sem staðfest hefur samræmi merkisins við kröfur. Þá eiga þau að vera merkt með nafni og heimilisfangi framleiðanda auk annarra nauðsynlegra upplýsinga, s.s. um notkun þ.m.t, hvernig á að festa endurskinsmerkið.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA