Fara yfir á efnisvæði

Ástand vínmála ekki gott

10.07.2014

Neytendastofa gerði víðtæka könnun á ástandi vínmála annað árið í röð.  Vínmál eiga að vera löggild eins og sjússamælar og vínskammtarar eða sérmerkt glös. Farið var á 91 vínveitingastað og kom í ljós að almennt voru notuð rúmmálsmerkt vínmál við sölu á sterku áfengi en töluvert vantaði upp á að viðkomandi búnaður væri löggiltur. Af þeim veitingastöðum sem kannaðir voru reyndist enginn í lagi. Bjórglös voru í flestum tilvikum með rúmmálsmerki. Léttvínsglös voru ekki merkt en eitthvað var um að þess í stað væru notuð mælikör (karafla/samanburðarmál) eða litlar flöskur.

Árið 2013 voru löggilt 63 veltivínmál. Neytendastofa mun áfram vinna að því að söluaðilar áfengis noti mælibúnað sem uppfyllir lög og reglur. Þetta verður gert í samráði við hagsmunaaðila og eins með heimsóknum á sölustaði þar sem vínmál verða skoðuð.

TIL BAKA