Fara yfir á efnisvæði

IKEA innkallar barnarólu

29.09.2014

FréttamyndNeytendastofa vekur athygli á innköllun IKEA á GUNGGUNG barnarólu vegna slysahættu. Barnarólan hefur verið seld á öllum IKEA mörkuðum frá 1. apríl 2014.

Í tilkynningu frá IKEA kemur fram að borist hafi tilkynningar um að festingar rólunnar standist ekki öryggiskröfur IKEA og geti valdið slysum.

„Við þróum vörur sem eiga að efla sköpunargáfu barna og náttúrulega þörf þeirra fyrir hreyfingu. Börn hugsa ekki um öryggi þegar þau leika sér þannig að við þurfum að gera það við þróun varanna. Við höfum það að leiðarljósi hjá IKEA að selja aðeins vörur sem við myndum gefa okkar eigin börnum. Samt sem áður, þrátt fyrir ströng öryggispróf, verða okkur stundum á mistök. Þess vegna hefur verið ákveðið að innkalla GUNGGUNG róluna til að koma í veg fyrir fleiri tilvik,“ segir Cindy Andersen, viðskiptastjóri barnavara hjá IKEA.

Neytendur sem eiga GUNGGUNG barnarólu eru beðnir um að taka hana tafarlaust úr notkun og skila henni í IKEA verslunina þar sem hún verður endurgreidd að fullu. Ekki er nauðsynlegt að sýna kvittun til að fá endurgreitt. Nánari upplýsingar eru veittar í þjónustuveri í síma 520 2500 og á www.IKEA.is

TIL BAKA