Fara yfir á efnisvæði

BL ehf innkallar 13 Land Rover bifreiðar

04.02.2015

FréttamyndNeytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf að innkalla þurfi 13 Land Rover Defender bifreiðar með 2,2L og 2,4L vélum af árgerðinni 2011-2012. Ástæða innköllunarinnar er að komið hefur fram olíuleki á framdrifi báðum megin. Í alvarlegri málum hafa eigendur tilkynnt að hjól, hjólfesting og fjöðrunarbúnaður hafa gefið sig og brotnað upp í hjólskál. Í allra verstu tilfellum hafa hjól og hjólafestingar losnað frá bílnum.
Ef hjólfestingar losna hefur það áhrif á stöðugleika bílsins og akstursstefnu og eykst þá hætta á slysi til muna.

BL ehf mun hafa samaband við bifreiðareigendur vegna þessarar innköllunar.

TIL BAKA