Fara yfir á efnisvæði

Neytendastofa bannar Álftavatni ehf. notkun lénsins kexhotel.is.

07.04.2015

Neytendastofa hefur bannað Álftavatni ehf. og Þorsteini Steingrímssyni að nota lénið kexhotel.is. Stofnuninni barst kvörtun frá Kex Hostel ehf. sem taldi að með notkun lénsins væri brotið gegn vörumerkjarétti Kex Hostel.

Álftavatn ehf. hafði skráð lénið kexhotel.is og notað það til að beina umferð inn á vefsíðu Hostel B47 sem félagið rekur. Neytendastofa taldi að Kex Hostel og Hostel B47 væru keppinautar og að mikil líkindi væru með lénunum kexhostel.is og kexhotel.is. Að mati Neytendastofu hlaut Álftavatni að hafa verið ljóst að notkun lénsins bryti gegn einkarétti Kex Hostel.

Var Álftavatni ehf. og Þorsteini Steingrímssyni því bönnuð notkun lénsins kexhotel.is og gert að afskráð lénið hjá ISNIC lénaskrá.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA