Fara yfir á efnisvæði

Ákvörðun Neytendastofu staðfest

22.10.2015

Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur staðfest ákvörðun Neytendastofu nr. 53/2014 vegna kvörtun Norðurflugs ehf. vegna notkunar Þyrluþjónustunnar ehf. á lénunum helicopters.is, helicoptericeland.is og vörumerkinu HELO HELICOPTER SERVICE OF ICELAND.

Neytendastofa taldi orðin Helicopter, Service og Iceland öll almenn og skorta nægilegt sérkenni til þess að einn aðili geti notið einkaréttar á þeim. Þá væri orðasambandið „Helicopter Service of Iceland“ svo lýsandi fyrir þá þjónustu sem báðir aðilar veita að Norðurflug geti ekki átt einkarétt á því. Áfrýjunarnefnd staðfesti þá ákvörðun Neytendastofu að ekki væri ástæða til aðgerða.

Úrskurð í máli nr. 22/2014 má lesa í heild sinni hér

TIL BAKA