Fara yfir á efnisvæði

Vigtarmannanámskeið

03.03.2016

Námskeið til löggildingar vigtarmanna var haldið 18 – 20 janúar. Í húsakynnum Neytendastofu í Reykjavík sátu 13 þátttakendur námskeiðið en samtímis sátu 3 þátttakendur á Ísafirði námskeiðið með aðstoð fjarfundarbúnaðar.

Farið er yfir lög nr. 91/2006 um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn og reglur og reglugerðir sem byggðar eru á þeim lögum og snúa að starfi vigtarmanna. Áhersla er einnig lögð á lög og reglugerðir um efni sem tengist vigtun sjávarafla. Leiðbeinendur koma frá Neytendastofu og Fiskistofu. Námskeiðið var haldið í húsnæði Neytendastofu í Borgartúni 21.

Grunnámskeið hafa verið haldin þrisvar á ári og verður næsta löggildingarnámskeið haldið í byrjun júní 2016.
Eins verður í ár boðið upp á endurmenntunarnámskeið, það fyrsta í fjögur ár en þörfin fyrir þau hvarf tímabundið vegna lengingar réttindanna úr fimm árum í tíu . Endurmenntunarnámskeiðið verður haldið í haust.

Á heimasíðu stofnunarinnar er hægt að fá upplýsingar um inntökuskilyrði á námskeiðin og fleira er þeim tengist eins og tímasetningar næsta námskeiðs og þar er einnig hægt að innrita sig á námskeið. Þar má líka finna og hala niður hluta af námsefninu sem farið er yfir.

TIL BAKA