Fara yfir á efnisvæði

BL ehf innkallar Nissan bifreiðar

09.05.2016

Lógó BLNeytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf. um innköllun á 14 Nissan bifreiðum árgerð 2007- 2014, af tegundinni Tiida. Ástæða innköllunarinnar er að komið hefur fram í gæðaeftirliti loftpúða framleiðandans Takata að möguleiki er á að aukinn þrýstingur komi upp þegar loftpúði virkjast, með þeim afleiðingum að púðinn rifnar. Ekki er framleiðanda kunnugt um nein óhöpp þessu tengdu, en af öryggisástæðum ákvað Nissan að innkalla þá bíla sem við á með Takata loftpúða í stýri.

BL ehf mun hafa samband við bifreiðareigendur vegna þessarar innköllunar.

TIL BAKA