Fara yfir á efnisvæði

Toyota innkallar Lexus IS og Avensis bifreiðar

03.06.2016

Lógó toyotaNeytendastofu hefur borist tilkynning frá Toyota á Íslandi um innköllun á 89 Lexus IS bifreiðum árgerð 2005-2008 og 104 Avensis bifreiðum árgerð 2008. Ástæða innköllunarinnar er vegna galla í Takata öryggispúðum. Gallinn í öryggispúðunum felst í því að röng hleðsla í drifbúnaði öryggispúðanna getur rifið gat á drifbúnaðinn sjálfann sem veldur því að púðinn blæs ekki rétt út við árekstur og virkni hanns verður ekki eins og til er ætlast. Þessi innköllun er á heimsvísu og hér á landi gætu verið Toyota bílar af gerðunum Tundra og Sequoia framleiddir í Bandaríkjunum með þessari gerð af öryggispúðum. Eigendur slíkra bíla geta snúið sér til næsta Toyota þjónustuaðila sem getur aflað upplýsinga um hvaða Toyota bílar framleiddir í Bandaríkjunum eru í þessari innköllun.

Toyota mun hafa samband við bifreiðareigendur vegna þessarar innköllunar.

TIL BAKA